Takk fyrir þolinmæðina

Við þökkum fyrir frábærar viðtökur á afsláttadögum sl. daga. Vegna mikils álags í vefverslun getur verið seinkun á afhendingu pantana.
Takk fyrir þolinmæðina, við erum að vinna pantanirnar eins hratt og við getum.

7. Desember 2022

Lilja Gísladóttir nýr starfsmaður Hagkaups

Lilja Björg Gísladóttir hefur verið ráðin í stöðu sérfræðings á markaðssviði Hagkaups en hún stafaði áður hjá heildsölu CU2 sem vörumerkjastjóri.

Lilja Björg hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum og hefur samhliða störfum sínum haldið úti öflugum samfélagsmiðli, hlaðvarpsþáttum og tekið að sér ýmis verkefni tengd förðun. Lilja Björg er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík og förðunarfræðingur frá Reykjavík Make Up School.

“Ég er virkilega spennt fyrir því að takast á við ný og spennandi verkefni hjá Hagkaup. Hagkaup er flott fyrirtæki með frábært vöruúrval þar sem flestir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Sem mikill snyrtivöru unnandi er sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til þess að starfa í einni stærstu snyrtivöruverslun landsins. Ég tel að fyrirtækið sé á frábærri vegferð og hlakka til þess að fá að taka þátt í að móta framtíðina með Hagkaup” segir Lilja Björg Gísladóttir.

Hagkaup, nýr starfsmaður, markaðsdeild, Lilja Björg Gísladóttir, Lilja Gísla

„Ráðning Lilju Bjargar er liður í nýrri vegferð Hagkaups og við erum heppin að fá til okkar öfluga manneskju sem mun taka þátt í því að móta stefnuna og skerpa á okkar línum í markaðsmálum. Okkar markmið er að veita framúrskarandi þjónustu og upplifun og til þess að uppfylla það loforð þurfum við gott fólk með okkur í lið og það er nákvæmlega það sem við erum að gera um þessar mundir. Við erum að mynda gott teymi sem nær vel utan um spennandi verkefni framundan“ segir Eva Laufey Kjaran markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups.