18. Janúar 2024

Heilsumst á heilsudögum í Hagkaup

Heilsudagar Hagkaups hafa verið á dagskrá tvisvar á ári frá árinu 2012 og verða sífellt stærri. Hagkaup býður upp á fjölbreytt úrval af vörum sem snúa að heilsunni. Á hverju ári eru hinir ýmsu þemadagar þar sem við leggjum áherslu á ýmsa vöruflokka og að þessu sinni eru það heilsudagar þar sem leggjum áherslur á vörur sem stuðla að betri heilsu.

Vítamín, prótein, grænmeti, hollur og fjölbreyttur matur og listinn er langur enda eru yfir þúsund vörur á sérstöku tilboði í öllum verslunum Hagkaups frá 18.janúar – 4.febrúar. Við nýtum þessa daga til þess að vekja áherslu á þessum vörum sem í boði eru, eitthvað fyrir alla og heilsa er auðvitað það sem við eigum að hugsa um allan ársins hring. Heilsa er ekki janúarsprettur og við viljum koma þeim skilaboðum áleiðis til okkar viðskiptavina að heilsa er fyrir okkur öll og það er misjafnt hvernig við lítum á heilsu, hver og einn er með sitt en aðal málið er bara að hugsa vel um heilsuna og við segjum það sennilega ekki nógu of oft hvað hún er mikilvæg.

Í ár fengum við leikarann og skemmtikraftinn Villa Netó með okkur í lið sem andlit Heilsudaga ásamt því að vinna með fleiri frábærum einstaklingum, fjölbreyttum hópi fólks því öll tengjumst við heilsu og heilsa er fyrir okkur öll. Það má segja að það sé þemað í ár og hefur kannski aldrei verið jafn mikilvæg. Skammdegið er mikið og hörmungar bæði hér á landi og erlendis dynja yfir og því mikilvægara sem aldrei fyrr þá sérstaklega fyrir andlega heilsu að huga vel og hlúa vel að sjálfum sér.

Við í Hagkaup nýtum einnig Heilsudagana í það að búa til skemmtilega viðburði og framleiða efni sem snýr að heilsunni. Við bjóðum upp á ýmsa viðburði í samstarfi við birgja og þá má nefna matreiðslunámskeið með Ellu Stínu þar sem hún kennir og kynnir fyrir okkur hennar vörum sem slegið hafa í gegn. Systurnar Anna Marta og Lovísa verða einnig með matreiðslukvöld og kynna sínar vörur og sýna okkur listir sínar í eldhúsinu. Einnig verðum við með golfkennslu í golfhermi, kírópraktora í verslunum okkur sem gefa ráð, morgunæfingar og við munum auglýsa dagskrána vel þegar nær dregur og hvetjum alla til þess að mæta á viðburðina en þar er þó takmarkað pláss á hvern viðburð en við erum með fjölbreytta dagskrá og flestir ættu að finna sér eitthvað við sitt hæfi, gjaldfrjálst. Einnig verða kynningar á hinum ýmsu vörum á meðan dögunum stendur og skemmtileg stemning í verslunum okkar. Við getum hreinlega ekki beðið eftir því að taka á móti okkar frábæru viðskiptavinum á heilsudögum.