Kiehl's Rice & Wheat Volumizing Conditioner endurlífgar fínt og líflaust hár, gefur lyftingu og daufu hári líf án þess að þurrka. Hárnæringin vinnur gegn rafmögnun í hári, slitnum endum og gefur djúpan raka. Formúlan inniheldur hrísgrjóna- og hveitiprótein sem hjúpa hárin til að gefa heilbrigðara og þykkara útlit, hreint hunang og jojoba fræ gefa hárinu næringu og mýkt án þess að þyngja það. Hárið verður glansandi, mjúkt og með lyftingu. Mild rakagjöfin leysir úr flækjum í hári, mýkir slitna enda og hemur ný hár sem gjarnan standa upp. Hárnæringin hentar olíkenndu og þunnu, flötu og fínu hári.