KIEHL'S
STOP-the-SHINE starter set
STOP-the-SHINE starter set inniheldur þrjár vörur sem koma í veg fyrir olíumyndun yfir daginn án óþæginda.
Verð:8.999 kr.
Vörunúmer: 1223322
Kiehl's STOP-the-SHINE starter set askjan inniheldur Ultra Facial andlitshreinsi, Ultra Pure High-Potency serum með 5% níasínamíði og Ultra Facial andlitskrem. Ultra Facial Cleanser er mildur andlitshreinsir sem fjarlægir óhreinindi og dauðar húðfrumur án þess að raska rakastigi húðar, hann kemur jafnvægi á sýrustig og eflir varnarkerfi hennar. Formúlan inniheldur squalane, avókadóolíu og glýserín sem jafna áferð húðar, efla varnarkerfi hennar, gefa mikinn raka og næringu svo húð verður mjúk og þægileg. Andlitshreinsirinn gefur milda en áhrifaríka hreinsun án þess að þurrka húðina eða fjarlægja náttúrulegar olíur. Hreinsirinn hentar öllum húðerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu og er prófaður af húðlæknum. Ultra Pure High-Potency Serum 5% Niacinamide dregur úr sýnileika opinna húðhola og húðlýta á við fýlapensla og bólur ásamt því að draga úr bólgum og roða. Formúlan er mjög hrein og inniheldur einungis 10 innihaldsefni, þar með talið 5% níasínamíð. Virk formúlan dregur úr stíflum í húð, jafnar áferð, minnkar sýnileika opinna húðhola og jafnar húðlit. Serumið hentar öllum húðgerðum, aldri og kynjum, er á ilm- og litarefna og er vegan. Ultra Facial andlitskremið er söluhæsta andlitskremið frá Kiehl's um allan heim með 3000 5-stjörnu umsagnir! Létt andlitskremið er rakasprengja sem gefur allt að 24 klst rakagjöf sem tvöfaldar (2,3x) rakastig húðarinnar, jafnvel á þurrustu svæðum. Varnarkerfi húðar styrkist um allt að 48% svo hæfni húðar til að standast daglegt álag og umhverfisáreiti á við veðurbreytingar, svefnleysi og mengun eykst til muna. Kremið gengur fljótt inn í húðina án þess að hún verði feit eða klístruð. Formúlan inniheldur einstaka samsetningu glýkópróteina úr jökli og squalane úr ólífum sem gefa húðinni mýkt, jafnari áferð og heilbrigt útlit. Kremið er prófað við eðlilegar aðstæður og við erfiðustu aðstæður og veðurskilyrði. Formúlan er án ilmefna og hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.
Notaðu lítið magn af Ultra Facial hreinsinum á hreina, raka fingur og nuddaðu á raka húð með hringlaga hreyfingum upp á við þar til hreinsirinn freyðir, varastu augnsvæði. Skolaðu strax ef hreinsirinn kemst í snertingu við augu. Berðu 4-5 dropa af Ultra Pure seruminu á hreina, þurra húð kvölds og morgna. Berðu Ultra Facial kremið yfir serumið kvölds og morgna.
Value1: AQUA / WATER GLYCERIN DECYL GLUCOSIDE SODIUM C14-16 OLEFIN SULFONATE ACRYLATES COPOLYMER DISODIUM COCOAMPHODIACETATE LAURYL GLUCOSIDE PEG-200 HYDROGENATED GLYCERYL PALMATE COCAMIDOPROPYL BETAINE PENTYLENE GLYCOL SODIUM CHLORIDE PHENOXYETHANOL PEG-7 GLYCERYL COCOATE SODIUM HYDROXIDE CITRIC ACID HEXYLENE GLYCOL BEHENYL ALCOHOL DISTEARYL ETHER SODIUM BENZOATE LAURETH-2 HYDROXYACETOPHENONE BENZOIC ACID SQUALANE PRUNUS AMYGDALUS DULCIS OIL / SWEET ALMOND OIL PRUNUS ARMENIACA KERNEL OIL / APRICOT KERNEL OIL TOCOPHEROL ASCORBYL GLUCOSIDE PERSEA GRATISSIMA OIL / AVOCADO OIL Value2: AQUA / WATER GLYCERIN PROPANEDIOL DIMETHICONE ISONONYL ISONONANOATE HYDROXYETHYLPIPERAZINE ETHANE SULFONIC ACID PHENOXYETHANOL CARBOMER BUTYLENE GLYCOL CHLORPHENESIN CAPRYLYL GLYCOL DIMETHICONOL SODIUM HYDROXIDE XANTHAN GUM PENTYLENE GLYCOL TETRASODIUM EDTA TOCOPHERYL ACETATE MENTHOXYPROPANEDIOL PSEUDOALTEROMONAS FERMENT EXTRACT BIOSACCHARIDE GUM-1 SARCOSINE SALICYLIC ACID Value3: AQUA / WATER NIACINAMIDE GLYCERIN PROPANEDIOL METHYL GLUCETH-20 HYDROXYACETOPHENONE SODIUM HYALURONATE CAPRYLYL GLYCOL CARBOMER SODIUM HYDROXIDE