„Fáum dögum síðar skrifar Steindór afi minn mömmu í Noregi að amma mín hafi loks ákveðið að segja mér tíðindin og hann sé viss um að það hafi verið eins vel gert og hægt var miðað við aðstæður.“ Í opinskárri ævisögu sinni veitir Geir einstaka innsýn í baksvið stjórnmálanna, meðal annars mánuðina örlagaríku haustið 2008, og er óhætt að segja að þar komi ýmislegt á óvart. Hann fjallar einnig ítarlega og gagnrýnið um landsdómsmálið. Geir skrifar af einlægni um einkalíf sitt, uppvöxt í Vesturbæ Reykjavíkur, MR og námsár í Bandaríkjunum en einnig dramatíska atburði úr æsku sem hann hefur aldrei rætt opinberlega áður, þar á meðal viðkvæm fjölskyldumál. Geir styðst við margvísleg gögn úr sínu einkasafni – sendibréf, tölvupósta, símskeyti, smáskilaboð, minnisblöð og dagbækur en einnig myndir. Fæst af því hefur áður komið fyrir almenningssjónir. Ævisaga Geirs H. Haarde er stórmerkileg og sætir tíðindum.