Vandaður bakpoki í skólann
Þessi taska er með fjórar stillanlegar ólar (2 axlar, yfir bringu og yfir mjaðmir) og liggur hún þægilega að bakinu. Hún er með sér hólf fyrir far- eða spjaldtölvu og vatnshelt hólf fyrir nestisbox.
Hægt er að sérsníða útlitið á töskunni með viðsnúanlegum vasa að framan og 5 meðfylgjandi nælum.
Taskan er með endurskinsmerki á öllum hliðum og inniheldur vatnshelda hlíf sem hægt er að draga yfir töskuna.