BIOEFFECT
EGF Power Serum 15ml
Ný og afar öflug húðvara sem er sérstaklega þróuð til að styrkja ysta varnarlag húðarinnar, jafna húðlit og vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur, litamisfellur og þurrk. EGF Power Serum er framsækin formúla aðeins 12 hreinna og virkra efna, m.a. EGF úr byggi, KGF úr byggi – boðskiptaprótín sem styrkir varnarlag húðarinnar – ásamt hýalúronsýru og NAG.
Verð:19.990 kr.
Vörunúmer: 1203788
Nýtt og öflugt serum sem hefur raunveruleg áhrif á sjáanleg öldrunarmerki. Hið nýja EGF Power Serum er afar öflug og áhrifarík húðvara sem er sérstaklega þróuð til að vinna á öldrunarmerkjum húðar. Þessi nýja og byltingarkennda formúla inniheldur aðeins 12 hrein og virk efni sem voru sérvalin af vísindateyminu okkar til að tryggja raunverulegan árangur. Virknirannsóknir hafa sýnt að notkun EGF Power Serum bætir 5 helstu öldrunarmerki um allt að 50% eða meira. Þessir kraftmiklu húðdropar vinna á þurrki, litamisfellum, hrukkum, húðþynningu og slappri húð, á sama tíma og þeir hafa eflandi áhrif á ysta varnarlag húðarinnar og varna skaðlegum efnum aðgang að henni. Þessi framsækna formúla inniheldur lykilinnihaldsefnið okkar, EGF (Epidermal Growth Factor) úr byggi, hið nýja KGF (Keratinocyte Growth Factor) úr byggi, NAG (N-Acetyl Glucosamine) og hýalúronsýru, sem stuðla í sameiningu að heilbrigðari og sléttari húð. EGF, KGF, NAG og hýalúronsýra fyrirfinnast náttúrulega í húðinni og gegna mikilvægu hlutverki við að viðhalda heilbrigði hennar. Þessi sérvöldu efni vinna saman á skilvirkan hátt og samlegðaráhrif þeirra tryggja raunveruleg áhrif á ásýnd húðarinnar.
Berið 2-4 dropa á andlit og háls með mjúkum hringhreyfingum upp á við. Bíðið í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við farða, sólarvörn eða krem eru bornar á húðina. Má nota kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að ná hámarksárangri.
Lykilinnihaldsefni EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar fann upp aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar. KGF — Boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni, hefur eflandi áhrif á ysta varnarlag hennar og viðheldur heilbrigðri ásýnd. KGF úr byggi styður við náttúrulega viðgerðarhæfni húðar og hefur verndandi áhrif gegn ýmiss konar ytra áreiti, þ.m.t. af geislun, umhverfisáhrifum og efnaáhrifum. Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina. N-Acetyl Glucosamine (NAG): Vegan form af amínóeinsykru sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og er staðsett á milli húðfruma. Sýnt hefur verið fram á að NAG styður við náttúrulega framleiðslu hýalúronsýru í húðinni. Rannsóknir hafa einnig sýnt að það stuðlar að bjartari og jafnari ásýnd og dregur úr litamisfellum. NAG hefur andoxandi eiginleika, styður við heilbrigða uppbyggingu (e. structural integrity) húðarinnar, viðheldur teygjanleika og vinnur á þurrki með því að draga úr vökvatapi og efla rakabindingu. Full Ingredient List GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH_x0002_POLYPEPTIDE-3) Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.