Biomains Vitaminé er handáburður fyrir hendur og neglur inn í Eau Vitaminé línuna. Sérstaklega hannaður til að vernda og rakanæra hendur þínar og neglur.
Handáburðurinn er auðgaður með Life Plankton – einstakt innihaldsefni Biotherm af náttúrulegum uppruna, sem þekkt er fyrir endurnýjandi eiginleika. Inniheldur einnig Níasínamíð, sem eykur ljóma og bætir áferð húðar og E-Vítamín sem hjálpar til við að draga úr fyrstu öldrunareinkennum húðar. Handáburðurinn nærir og gefur raka sem stuðlar að mýkt húðar á höndum. Létt áferð sem gengur hratt inn í húðina. Fullkominn í daglega notkun.