Black Opium Over Red býður þér að upplifa nýtt ferðalag.
Sjálfsörugg og djörf Black Opium konan í anda Yves Saint Laurent færir okkur nýjan ilm með rauðum blæ. Þessi djúpi dökki steinn með rauðum nótum hefur dáleiðandi áhrif með litríkri útgeislun. Dýrmætt og snyrtilegt glas sem endurspeglar gæði, áræðni og arfleifð Yves Saint Laurent.
Ilmurinn byggir á klassíska Black Opium. Toppnótan með peruangan í bland við græna mandarínu færir ilminum sætu og ferskleika. Hjartað einkennist af andstæðum ljóss og myrkurs sem er einkennandi fyrir Black Opium línuna og grunnurinn hrífur þig með sér á vit ævintýra með ávanabindandi svörtu kaffi og dýrmætri munúðarfullri vanilla.