IT COSMETICS
Bye Bye Dark Spots Concealer + Serum 6,7ml
Bye Bye Dark Spots Concealer + Serum hylur dökka bauga og bletti, jafnar áferð samstundis og til lengri tíma með 2% níasínamíði.
Verð:5.299 kr.
Vörunúmer: R01987
IT Cosmetics Bye Bye Dark Spots Concealer + Serum hyljarinn er hannaður í samstarfi við húð- og lýtalækna og inniheldur virkni húðvöru ásamt förðunarvöru. Hyljarinn inniheldur ljómagefandi serum með 2% níasínamíði, hýalúrónsýru og koffíni sem bæta sýnilega áferð húðar með reglulegri notkun. Níasínamíð jafnar litarhátt húðar og dregur úr sýnileika dökkra bletta og bauga. Hýalýrónsýra viðheldur teygjanleika húðar og bætir þéttleika. Koffín gefur ljóma og birtu og dregur úr þrota og vatnsuppsöfnun. Hyljarinn gefur miðlungs þekju og má nota staðbundið eða yfir allt andlitið. Formúlan gefur allt að 24 klst rakagjöf og er mjög létt og náttúruleg svo auðvelt er að blanda og byggja hana upp. Hyljarinn inniheldur lítinn bursta á öðrum endanum sem gefur lýtalausa áferð á ferðinni. Klínískar rannsóknir sýndu að dökkir blettir og baugar verða minna sýnilegir með reglulegri notkun og að áferð verður jafnari og sléttari. Hyljarinn hentar öllum húðgerðum, jafnvel viðkvæmri húð, hann er prófaður af húðlæknum, er vegn og án ilmefna.
Til að hylja dökka bletti/bauga er gott að velja lit sem passar húðinni í kringum dökku blettina/baugana. Til að lýsa upp andlit og undir augum er gott að velja lit sem er einum til tveimur tónum ljósari en húðin. Þú getur notað hyljarann hvar sem þú vilt með því að dúmpa formúlunni á þau svæði sem þú vilt hylja og notaðu svo burstann á hinum endanum til að blanda á húðinni. Fullkomnaðu áferðina með Your Skin But Better CC+ Nude Glow SPF40 kreminu fyrir náttúrulega áferð og heilbrigðan ljóma.
G2049016 - INGREDIENTS: AQUA / WATER COCO-CAPRYLATE/CAPRATE HYDROGENATED POLYISOBUTENE GLYCERIN PROPANEDIOL PROPYLENE GLYCOL SORBITAN ISOSTEARATE POLYGLYCERYL-6 POLYRICINOLEATE NIACINAMIDE SYNTHETIC FLUORPHLOGOPITE HYDROXYETHYLPIPERAZINE ETHANE SULFONIC ACID PHENOXYETHANOL MAGNESIUM SULFATE DISODIUM STEAROYL GLUTAMATE PARAFFIN HYDROXYACETOPHENONE DISTEARDIMONIUM HECTORITE CERA MICROCRISTALLINA / MICROCRYSTALLINE WAX CAPRYLYL GLYCOL SILICA SILYLATE SILICA SYNTHETIC WAX CAFFEINE CENTELLA ASIATICA EXTRACT TRISODIUM ETHYLENEDIAMINE DISUCCINATE ALUMINUM HYDROXIDE TOCOPHEROL ADENOSINE SODIUM HYALURONATE HYDRATED SILICA HELIANTHUS ANNUUS SEED OIL / SUNFLOWER SEED OIL METHICONE [+/- MAY CONTAIN: CI 77891 / TITANIUM DIOXIDE CI 77491, CI 77492, CI 77499 / IRON OXIDES CI 77007 / ULTRAMARINES CI 15985 / YELLOW 6 LAKE CI 42090 / BLUE 1 LAKE CI 45410 / RED 28 LAKE CI 15850 / RED 7]. (F.I.L. Z284346/1). The product ingredients list may be updated from time to time. Always read the ingredient list on the pack of the purchased product.