Létt augnkrem sem dregur úr sýnileika dökkra bauga og þrota umhverfis augnsvæðið. Kremið færir augunum aukna birtu svo það lifnar yfir andlitinu. Berið augnkremið umhverfis augun og nuddið því vel inn í húðina þar til það hefur farið vel inn í hana. Gott er að nota baugfingur til að bera kremið á húðina og berið það út að gagnauga.
Formúlan inniheldur þrjú nauðsynleg keramíð sem styrkja ysta lag húðarinnar og rakagefandi hýalúrónsýru. Augnkremið er byggt á MVE tækni sem stuðlar að því að húðin fær jafna næringu allan daginn og alla nóttina. CeraVe Eye Repair Cream er þróað með húðsjúkdómalæknum til að gefa húðinni raka og styrkja hana.