CHILDS FARM
Sleep calming massage lotion - Nuddkrem 150ml
Róandi nuddkrem sem hjálpar þér að skapa góða háttatímarútínu með barninu þínu. Sleep nuddkremið er annað skrefið í þriggja þrepa háttatímarútínu Childs Farm.
Verð:1.899 kr.
Vörunúmer: 1221439
Þetta milda lavender nuddkrem er annað skrefið í háttatímarútínu Childs Farm með Sleep línunni. Nuddkremið inniheldur ilmblöndu sem þróuð var af Childs Farm í samstarfi við svefnsérfræðinga í Bretlandi. Ilmblandan hefur róandi áhrif á hugann og hjálpar barninu að tengja ilminn við háttatíma. Sleep nuddkremið inniheldur húðelskandi efni eins og Shea smjör og næringarríkar olíur sem gefa húðinni mikinn raka. Kremið er bæði hægt að nota sem áburð en einnig til að nudda uppúr fyrir svefninn. Sleep línan hentar börnum og ungbörnum eldri en 6 mánaða.
Eftir að litla barnið þitt hefur skvett og sullað í baðinu er kominn tími til að binda rakann í húðinni með því að bera á hana gott krem og leyfa henni að nærast alla nóttina. Tillaga að góðu róandi nuddi:
- Byrjaðu með hendurnar létt á brjósti barnsins og strjúktu varlega upp að öxlum þess.
- Nuddaðu niður handleggina að fingurgómunum.
- Dreifðu fingrunum út og nuddaðu lófana. Þegar þú ert búin/n með hendur barnsins skaltu þurrka af fingrunum áður en það stingur þeim í munninn.
- Nuddaðu varlega kvið barnsins með réttsælis hring-hreyfingu.
- Nuddaðu niður fætur barnsins. Réttu fætur þess út og beygðu þá upp í átt að maganum. Þessi hreyfing hjálpar ef barnið þjáist af hægðatregðu eða föstu lofti.
- Þegar þú ertu komin/n niður að okkla skaltu nudda hæla og iljar og enda á tánum með því að nudda létt hverja tá og toga oggupons í hana.
- Að lokum skaltu nudda andlitið ofur-varlega. Byrjaðu með hringlaga hreyfingu efst á höfðu barnsins. Færðu síðan fíngurgóma þína á mitt enni barnsins nuddaðu niður að efsta hluta augabrúnanna og kláraðu nuddið á krúttlegu kinnunum þeirra.
Aqua (Water), Vitis Vinifera (Grape) Seed Oil, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Cetearyl Alcohol, Glycerin, Lauryl Glucoside, Polyglyceryl-2 Dipolyhydroxystearate, Benzyl Alcohol, Parfum (Fragrance), Xanthan Gum, Sodium Stearoyl Glutamate, Tocopherol, Citric Acid, Dehydroacetic Acid, Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Oil, Coumarin, Alpha-Isomethyl Ionone, Limonene.