Kiehl's Midnight Recovery Botanical Cleansing Oil er hreinsiolía sem fjarlægir óhreinindi, farða og olíur, hún hefur nærandi áhrif og er það áhrifarík að það þarf ekki aðra hreinsivöru með. Fjaðurlétt olían bráðnar á húðinni og umbreytist í hreinsimjólk þegar blönduð með vatni. Formúlan inniheldur lavender olíu, olíu miðnæturmaríulykils og squalane sem viðhalda raka, auka teygjanleika, efla varnarkerfi húðar og hafa róandi áhrif. Áhrifarík hreinsiolía sem fjarlægir óhreinindi, olíur og alla förðun, hún skilur við húðina mjúka, teygjanlega og þægilega. Olían róar og mýkir húð svo hún er móttækilegri fyrir vörum sem á eftir koma. Olían stíflar ekki húð eða veldur bólumyndun, er prófuð af augnlæknum og má nota á andlit og augu. Hreinsirinn hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.