YSL Loveshine Lipstick - Hámarks glans með einni umferð. YSL LOVESHINE er varalitur sem gefur vörunum safaríka ljómandi áferð. Rakagefandi og mýkjandi formúla verndar og nærir varirnar. Þægilegur í notkun og rennur mjúklega á vörunum. Dýpri litur og meiri glans með fleiri umferðum.
EINSTÖK ÁFERÐ OG FORMÚLA
Upplifðu einstaka umbreytingu þegar formúlan bráðnar á vörunum úr varalit yfir í fljótandi, glansandi olíu. Dekraðu við varirnar með töfrandi litum sem auðvelt er að byggja upp, frá fáguðum hálfgagnsæjum litum upp í áberandi bjarta liti sem tekið er eftir!
Endurbætt formúla goðsagnakennda Rouge Volupté Shine í nýjum silfurlitum umbúðum. Mýkjandi formúlan gefur vörunum þægilega tilfinningu með raka, næringu og vörn.
LITIR
Fáanlegur í allt að 20 litatónum frá náttúrulegum mildum litum upp í djarfa mikla liti. Línan samanstendur af fjögurra tóna fjölskyldu: náttúrulegum, bleikum, rauðum og appelsínutónum. Loveshine línan inniheldur einnig 3 vinsæla liti sem kallaðir eru stjörnulitir.
44 Nude Lavalière
150 Nude Lingerie
201 Rosewood Blush
ÁVINNINGUR
• Varirnar sýnast mýkri og safaríkari
• Auðveldir í notkun, aðlagast fullkomlega og renna mjúklega á vörunum
• Nærandi og rakagefandi formúla verndar, mýkir og nærir varirnar
ÁFERÐ
Létt hálfþekjand, glansandi áferð og litur sem auðvelt er að byggja upp í meiri þekju. Útkoman er safaríkar og rakafylltar varir með enn meiri glans.
SJÁLFBÆRNI
Varan inniheldur fíkju úr YSL Beauty Ourika garði í Marokkó.
NOTKUN
Láttu varirnar skína af vellíðan með hverri umferð!