NIP+FAB
Glycolic Fix Overnight Skin Reviver Extreme 8%
Vaknaðu með ljómandi húð með öflugustu glýkólsýrumeðferð okkar hingað til. Næsta kynslóð AHA-sýrutækni, hönnuð til að sannarlega umbreyta húðinni. Upplifðu margþættan ávinning í einni flösku en þessi alhliða formula er lykillinn að unglegri, hreinni og sléttari húð.
Verð:4.699 kr.
Vörunúmer: 1227656
Afhjúpaðu ljómandi húð á meðan þú sefur. Húðmeðferð sem hlaðin er öflugum innihaldsefnum á borð við 8% glýkólsýru og mjólkursýru, en hún fjarlægir dauðar húðfrumur auk þess að gera húðina líflegri, sléttari og hreinni. Þú getur kvatt stíflandi dauðar húðfrumur og kallað fram unglegri ásýnd þar sem fínar línur og hrukkur eru minnar sjáanlegar. Formúlan er auðguð arniku og kaktusfíkju og dregur sýnilega úr dökkum blettum, jafnar húðlit og veitir þér ljóma líkt og eftir andlitsmeðferð. Svona virkar varan: 8% glýkólsýra: Fjarlægir dauðar húðfrumur á öflugan hátt og hraðar endurnýjun húðfruma. 3% glýserín + 1% skvalín: Saman hjálpa þessi innihaldsefni við að mýkja ásýnd húðarinnar auk þess að gera hana mýkri og rakameiri. 2% Aloe vera: Veitir raka, sefun og bætir áferð. Mjólkursýra: Fjarlægir húðfrumur á mildan hátt samhliða aukningu á rakastigi húðar. Kaktusfíkja: Einstakur rakagjafi sem virkar strax og til lengri tíma.
HVENÆR? Skref 2 í kvöldrútínu þinni – meðferð. Notist 2-3x í viku. Berið á hreina húð sem serumskref, fylgið eftir með sefandi rakakremi. Við mælum með Hyaluronic Fix Hybrid Gel Cream 2% eða Ceramide Fix Overnight Cream 12%. Til að ná betri árangri, berið Peptide Fix Finishing Oil 2% ofan á rakakremið, en ekki beint ofan á Glycolic Overnight Skin Reviver, til að tryggja virkni peptíðanna. HVERNIG? Notið 1-2 pumpur og berið beint á hreina húð yfir andlit, háls og bringu en forðist snertingu við augnsvæðið. Notið 2-3x í viku. ÁBENDINGAR: Fullkomið til að nota þau kvöld sem retínól er ekki notað en þessi háþróaða formúla notar 8% glýkólsýru til að fjarlægja og leysa upp dauðar húðfrumur af yfirborðinu, hreinsa þær burt til að leyfa hraðari og skilvirkari endurnýjun húðfruma, til að afhjúpa ljómann sem býr undir. Samsett með mjólkursýru fyrir tvöfalda húðflögnun en þessi ákafa húðendurnýjunarmeðferð sýnir árangur strax.
Aqua/Water/Eau, Glycolic Acid, C15-19 Alkane, Caprylic/Capric Triglyceride, Hydrogenated Ethylhexyl Olivate, Glycerin, Cetearyl Alcohol, Sodium Hydroxide, Ethylhexylglycerin, Butylene Glycol, Squalane, Hydroxyethyl Acrylate/Sodium Acryloyldimethyl Taurate Copolymer, Phenoxyethanol, Glyceryl Stearate, PEG-100 Stearate, Benzyl Alcohol, Hydrogenated Olive Oil Unsaponifiables, Tocopherol, Arnica Montana Flower Extract, Saccharomyces Ferment, Xanthan Gum, Polysorbate 60, Parfum (Fragrance), Limonene, Benzyl Benzoate, Dehydroacetic Acid, Sorbitan Isostearate, Lauroyl Lysine, Lactic Acid, Geraniol, Aloe Barbadensis Leaf Juice Powder, Citral, Linalool, Opuntia Ficus-Indica Flower Extract, Potassium Sorbate, Citronellol.