Einstök og nýstárleg brúnkuvara, 100% náttúruleg og lífræn innihaldsefni.
Nærandi og létt brúnkufroða sem dýpkar húðlitinn og er mjög rakagefandi þökk sé lífrænni argan olíu og baobab olíu - skilur húðina ekki eftir þurra eða flekkótta.
Froðan er silkimjúk og einföld í notkun. Gefur ekki af sér brúnkulykt, inniheldur engin paraben, eiturefni, alkóhól eða þurrkandi efni.
Náttúruleg innihaldsefni: Fyrsta og eina brúnkufroðan sem hefur lífræna vottun. Formúlan samanstendur af náttúrulegum innihaldsefnum og brúnkan kemur frá náttúrulegum litarefnum eins og karamellu og rauðrófum. 100% náttúrulegt og lífrænt.
Rakagefandi: Gefur húðinni raka og þurrkar ekki. Áhrifin virka í allt að 10 daga.
Náttúrulegur ilmur: Ólíkt flestum brúnkuvörum er " Tan Organic Self Tan Mousse" framleitt án gerviefna og gefur því ekki af sér vonda brúnkulykt.
Auðvelt í notkun: Einfalt í notkun fyrir þá sem vilja dýpka litinn. Hægt er að dýpka litinn eftir þörfum með fleiri umferðum. Froðan er fljót að þorna, og skilur húðina eftir flauelsmjúka án þess að þurrka húðina.