Tan Organic Self Tan Oil er byltingarkennd brúnkuvara á heimsmælikvarða vegna gæða og allra þeirra vottana sem hún hefur fengið: umhverfisvottuð, vegan og cruelty-free.
Náttúrleg og lífræn leið til þess að ná fram fallegri brúnku á öruggan hátt.
Gefur húðinni á fljótlegan hátt bæði raka og brúnku, húðin fær náttúrulegt útlit og ljómandi húð. Hentar vel fyrir þá sem vilja milda brúnkumeðferð, eða hafa ekki notað áður brúnkuvörur og vilja byrja rólega. Þeir sem kjósa meiri lit geta prófað "Self Tan Lotion".
Glær og létt olía sem inniheldur lífrænt aloe vera sem tryggir fullkominn ljóma án flekkja og án slæmrar brúnkulyktar
Húðin verður mjúk, full af raka og fallega kastaníubrún næstu daga eftir notkun.
Self Tan Oil er samansett úr blöndu af náttúrulegum, lífrænum innihaldsefnum eins og aloe vera, argan olíu, borage fræjum og appelsínuberki sem gefa fullkominn ljóma.
Auðvelt í notkun. Þú þarft engan hanska til þess að bera Self Tan Oil og liturinn smitast ekki í fatnað eða rúmföt. Berið brúnkuna á með því að nudda rakagefandi olíunni í húðina með höndunum.
Varan er einstaklega rakagefandi, inniheldur aloe vera sem nærir húðina, endurlífgar og gefur raka og mýkt. Má nota á viðkvæma og mjög ljósa húð. Þessi vara hentar vel fyrir öll kyn. Getur einnig dregið úr hrukkum. Varan er örugg fyrir barnshafandi konur.
Heimsins fyrsta og eina umhverfisvottaða brúnkuvaran sem hefur eftirfarandi vottanir: Eco-Certified, Vegan, Organic, Cruelty Free og Ethical Association certification með 100 stig.