Þetta sérstæða Top Trump spil tekur á sjávardýrum sem eru í útrýmingarhættu. Það er því skemmtilegt og fræðandi í senn. Leikmenn kynnast aðstæðum sjávardýra sem eru á barmi útrýmingar eins og beinhákarla, flóðmanata, djöflaskata og sæsteinsuga. Vissir þú kannski að kirtilvökvi úr munni steinsugu kemur í veg fyrir að blóð fiska storkni?
Sniðugt spil fyrir fjölskylduna þar sem það opnar fyrir umræður um náttúruna og ábyrgð mannsins í heiminum í dag.
Hægt er að blanda þessu spili saman við Top Trumps spilið landdýr í hættu og fá þannig út einn stóran Top Trumps stokk.
Staðreyndir eru: fágæti í náttúrunni, dýragarðar, hætta á áföllum, verndarþörf og hætta á útrýmingu.