TRIND
Fungal Nail Serum 10 ml
- Hjálpar að koma í veg fyrir að sveppurinn breiðist frekar um nöglina. 2. Endurbyggir og styrkir nöglina 3. Bætir ástand naglarinnar.
Verð:2.699 kr.
Vörunúmer: 1100213
TRIND Fungal Serum gengur inn í nöglina og kemur þannig í veg fyrir að sveppir nái að dreifa sér um nöglina eða yfir á aðrar neglur. Serumið inniheldur hydrolyzed keratín sem endurbyggir, bætir og styrkir byggingarvef ósýkta svæðis naglarinnar. Sjáanlegur árangur á einungis tveim vikum. Inniheldur E-vítamín og B5.
Berið einn dropa á hreina nögl, tvisvar sinnum daglega. Nuddið mjúklega inn í nöglina, á naglaböndin og undir naglbrúnina og látið þorna. Endurtakið þetta daglega í 4 vikur. Eftir 4 vikur er efnið notað einu sinni á dag næstu 6-8 mánuðina fyrir neglur á höndum og 8-12 mánuði á táneglur eða þar til sveppir hafa horfið. Snertið ekki neglurnar með TRIND Nail Fungal Serum dropateljaranum. Til að koma í veg fyrir sveppi í nöglum ráðleggjum við: • Haldið nöglum stuttum. • Varist að skaða eða erta neglurnar. • Notið sér áhöld fyrir neglur með sveppi. • Hreinsið vandlega áhöld sem notuð eru á neglur. • Þvoið fætur vandlega, gætið þess að fjarlægja sápuleifar alveg. • Þerrið neglur og húð á milli tánna vandlega. • Skiptið oft um sokka. • Notið skó sem þrengja ekki að tánum. • Veljið ykkur skó úr efni sem andar. • Hreinsið skóna með vörum sem vinna gegn sveppum. • Skiptið um skó daglega. • Sótthreinsið sturtuna reglulega. • Forðist að ganga berfætt á fjölförnum stöðum. Sé TRIND Fungal Nail Serum notað með TRIND Nail Repair fæst enn betri árangur. TRIND Nail Repair má engöngu bera á neglur sem ekki eru orðnar mjög illa farnar. Þegar þessar tvær vörur eru notaðar saman þarf að gæta að:
- Berið 1 dropa af TRIND Fungal Nail Serumá hreina nögl um morguninn. Nuddið mjúklega inní nöglina, á nagaböndin, undir naglbrúnina og látið þorna. 2. Berið eina umferð af Trind Nail Repair á nöglina. Gætið að láta efnið ekki snerta naglaböndin.
- Fjarlægið TRIND Nail Repair um kvöldið og berið einungis serumið á eins og líst er hér að ofan.
- Endurtakið þetta í 2 vikur. Eftir þann tíma er serumið borið á tvisvar daglega, en Nail Repair einu sinni í viku, og þá tekið af aftur um kvöldið sama dag.
- Eftir 4 vikur er serumið notað einu sinni á dag, og Nail Repair einu sinni í viku næstu 6-8 mánuðina fyrir táneglur eða þar til sveppir eru horfnir. Eftir notkun skal þrífa brún flöskunnar.
Water(aqua), Alcohol Denat., Panthenol, Propylene Glycol, Hydrolyzed Keratin, Phytantriol, Xanthan Gum, Tocopheryl Acetate, Sodium Chloride, Fragrance (Parfum), Allantoin, Caprylhydroxamic Acid, Methylpropanediol, Tetrasodium EDTA, Tris(Tetramethylhydroxypiperidinol) Citrate, Biotin, Phenoxyethanol, Piroctone Olamine, Potassion Sorbate, Sodium Benzoate, Yellow 6(CI15985, Red 33(CI 17200).