VENITA
Trendy Brows Lamination kit
Einstakur pakki frá Venita til þess að framkvæma augabrúna lamination (augabrúna lyftingu) heima. Augabrúna lamination er nokkurs konar permanent fyrir augabrúnirnar til þess að móta þær á ákveðinn hátt svo þær festist þannig.
Verð:2.999 kr.
Vörunúmer: 1215206
Einstakur pakki frá Venita til þess að framkvæma augabrúna lamination (augabrúna lyftingu) heima. Í pakkanum er allt sem þarf til þess að framkvæma meðferðina heima. Hægt er að framkvæma meðferðina í allt að 20 skipti. Augabrúna lamination er nokkurs konar permanent fyrir augabrúnirnar til þess að móta þær á ákveðinn hátt svo þær festist þannig. Sniðugt fyrir þá sem eiga erfitt með að móta og halda augabrúnahárunum á sínum stað. Hægt er að opna augnsvæðið meira með því að lyft augabrúnahárunum upp. Einnig þá líta augabrúnirnar út fyrir að vera þykkari og með þéttari hárvöxt. Áhrif meðferðar endist í allt að 4 vikur.
Mjög mikilvægt er að fylgja meðfylgjandi leiðbeiningum vandlega. Framkvæma skal ofnæmisprufu fyrir notkun. Passa skal að efnin fari ekki í augu og nota skal hanska við framkvæmd meðferðar. Fyrir meðferð þá þarf að vera til staðar farða hreinsir, bómullarskífur og plastfilma sem er búið að klippa í strimla u.þ.b. 2,5x10 cm. (Þetta fylgir ekki með í pakkanum) 1) Notið farða hreinsi til þess að hreinsa augabrúnasvæðið vel. Nauðsynlegt er að fjarlægja olíu, ryk og önnur efni sem kunna að vera á augabrúnunum. Mikilvægt að svæðið sé orðið þurrt áður en byrjað er á meðferð. 2) Berið efni merkt 1 GLUE á augabrúnir og dreifið með burstanum. 3) Mótið hárin á þann hátt sem óskað er að lokaútkoma verði, með meðfylgjandi augabrúna burstum(hárin eiga að festast við húðina). 4) Setjið plastflimu yfir augabrúnirnar þannig að hún hylji þær vel og látið sitja á í 10 mínútur. 5&6) Berið efni merkt 2 PERM á augabrúnirnar og greiðið í gegn með meðfylgjandi bursta og mótið eins og óskað er að lokaútkoma verði. Hyljið augabrúnir með plastfilmu og látið sitja á í 10 mínútur. 7) Fjarlægið plastfilmuna og notið þurra bómullarskífu til þess að taka af auka efni sem eru eftir á augabrúnunum og passið að breyta ekki mótuninni. 8&9) Berið á efni merkt 3 FIXATION, passa skal aftur að breyta ekki mótuninni. Hyljið aftur augabrúnirnar með plastfilmu og látið sitja á í 10 mínútur 10) Fjarlægið plastfilmuna og hreinsið augabrúnir með hreinsi og skolið síðan vandlega með vatni.
GLUE: AQUA, VP/VA COPOLYMER, ALCOHOL DENAT., PHENOXYETHANOL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, GLYCERIN, PEG-40 HYDROGENATED CASTOR OIL, XANTHAN GUM, PARFUM. PERM: AQUA, THIOGLYCOLIC ACID, ETHANOLAMINE, HYDROXYETHYLCELLULOSE, ALCOHOL DENAT., LAWSONIA INERMIS (HENNA) EXTRACT, OLETH-18, SODIUM CITRATE, TETRASODIUM ETIDRONATE, SODIUM LAURETH SULFATE, PARFUM. FIXATION: AQUA, HYDROGEN PEROXIDE, CETEARETH-7, PHOSPHORIC ACID, SODIUM STANNATE TRIHYDRATE