6. Desember 2024
Andalæri á íslenskum pönnukökum
Andalæri á íslenskum pönnukökum með wasabimajónesi er ekki bara fallegt á að líta á veisluborðinu heldur einstaklega bragðgott líka. Snædís Jónsdóttir matreiðslumaður fer hér yfir hvernig má gera þennan ljúffenga rétt á einfaldan hátt.
Andalæri
4 stk. andalæri
½ (200 g) hoisin-krukka
1 dl kjúklingasoð
Sítrónusafi
Graslaukur
Steinselja
Mikilvægt er að geyma dósina úti í stofuhita í u.þ.b. tvær klukkustundir. Hitið ofninn í 180°c og veiðið andalærið úr fitunni. Geymið andafituna, hægt er að nota hana til steikingar eða frysta til betri tíma. Bakið andalærið í u.þ.b. fjórar mínútur, rífið kjötið svo af lærinu. Setjið hoisin-sósu í pott með kjúklingasoði, hitið upp hægt og rólega og bætið lærinu út í.
Íslenskar pönnukökur
3 dl hveiti
1 msk. sykur
5 dl mjólk
½ tsk. lyftiduft
2 egg
½ tsk. vanilluextrakt eða -dropar
30 g smjör
Setjið þurrefnin saman í skál og blandið vel saman. Hellið 3 dl af mjólk saman við, hrærið saman í kekkjalaust deig. Bætið einu og einu eggi saman við og hrærið vel. Bætið því sem eftir er af mjólkinni saman við deigið og vanillunni, blandið vel saman.
Wasabimæjó
2 msk. wasabiduft
3 dl japanskt majónes
Öllu blandað saman og sett í sprautupoka.
Til að strá yfir:
Ristuð sesamfræ
Vorlaukur