17. Desember 2024
Hátíðlegur kalkúnn á jólunum
Einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar, Ragnar Jónasson, er þekktur fyrir að gera hátíðlega kalkúnaveislu um jólin. Ilmurinn þegar hann eldar berst um borgina enda mælir hann með að hafa kalkúninn stóran og veglegan. Hér deilir hann gómsætum uppskriftum að mat sem gott er að gæða sér á meðan bókin hans, Hulda, er lesin en hún gerist meðal annars á aðfangadagskvöld.
Heilsteiktur kalkúnn með fyllingu
1 kalkúnn 8 kg
Bráðið smjör
Salt
Pipar
Kalkúnakrydd
Aðferð:
Þerrið kalkúninn að innan og fyllið. Penslið hann með smjöri og kryddið með salti, pipar og kalkúnakryddi. Steikið í 45 mínútur á hvert kíló við 180°C. Ausið soðinu úr ofnskúffunni yfir fuglinn á 30 mín. fresti. Hækkið hitann í 200-220°C á síðustu 10-15 mín. til að fá fallegan og stökkan ham.
Fylling
3 epli
½ rauð paprika
1 laukur
1 gulrót
1 sellerístilkur
250 g sveppir
2 dl kastaníuhnetur
6 sneiðar af beikoni
8 ristaðar brauðsneiðar
1 msk. salvía
1 egg
100 g smjör til steikingar
Salt
Pipar
Aðferð:
Saxið laukinn. Skerið allt annað í teninga og steikið allt saman í smjöri á stórri pönnu. Grænmetið á ekki að brúnast. Skerið beikonið í smábita og steikið með. Takið pönnuna af hitanum. Afhýðið eplin og skerið í bita. Grófhakkið hneturnar. Takið skorpuna af brauðinu og skerið það í teninga. Bætið olíu á pönnuna og kryddið. Í lokin er egginu hrært út í og því bætt saman við fyllinguna.
Sósan
50 g smjör
50 g hveiti
1 l soð úr skúffunni
2½ dl rjómi
Soð í sósuna
2 l vatn
1 laukur
2 gulrætur
1 sellerístilkur
10 piparkorn
1 lárviðarlauf
2 negulnaglar
1 bréf Tasty kalkúnakraftur
Aðferð:
Setjið 2 l af vatni í skúffuna undir grindina. Grófsaxið grænmetið og setjið í skúffuna. Þegar 30 mín. eru eftir er soðið sigtað í pott og fitan fleytt ofan af. Bakið upp með smjörbollu og bragðbætt með rifsberjahlaupi, rjóma og ögn af sérríi ef vill. Setja má kalkúnakraft út í sósuna eftir smekk.
Sætar kartöflur með sykurpúðum
2 stórar sætar kartöflur
¼ bolli smjör
3 skeiðar olía
½ bolli sykur (má vera púðursykur)
¼ tsk. salt
½ tsk. kanill
2 bollar sykurpúðar
Aðferð:
Skerið sætu kartöflurnar niður og setjið í ofnfast mót og ýrið aðeins olíu yfir. Bræðið sykur á pönnu með smjöri og hellið yfir kartöflurnar, ásamt kanil og salti. Bakið þar til kartöflurnar verða stökkar og girnilegar. Þá má setja sykurpúðana yfir og baka í nokkrar mínútur eftir smekk.