Síðasti dagur til að panta í vefverslun og fá afhent fyrir jól er 18. desember

21. Desember 2024

Humar með soja og hvítlauksgljáa

Það er vin­sælt að hafa alls kyns pinna­rétti um ára­mót­in, hvort held­ur sem er í ára­mótapartý­inu eða mat­ar­borðinu. Humar­hal­ar geta líka verið góður for­rétt­ur um jól­in og hér sýn­ir Snæ­dís Jóns­dótt­ir mat­reiðslumaður hvernig má gera ljúf­fenga humar­hala með poppuðu bók­hveiti. 

10 humarhalar
Soja- og hvítlauksgljái
50 g soja
100 g sykur
200 g vatn
1 msk. hvítlaukusduft
½ tsk. chili-duft

Allt sett í pott (utan humarinn) og soðið niður um 50%. Humarinn grillaður/steiktur. Gljáinn penslaður á og poppuðu bókhveiti stráð yfir. Humar með soja og hvítlauksgljáa.

Poppað bókhveiti
1 poki bókhveiti
Salt 2 l olía

Sjóðið vatn í potti með tsk. af salti. Setjið bókhveitið ofan í vatnið og sjóðið í sirka 12-15 mínútur. Setjið olíu í pott og hitið olíuna í 190°c. Setjið bókhveitið varlega ofan í olíuna og djúpsteikið þar til að það fer að fljóta og hætt er að krauma í olíunni. Veiðið upp með sigti og látið á pappír á bakka. Stráið salti yfir bókhveitið þegar það kemur heitt upp úr pottinum. Stráið á gljáðan humarinn.