18. Desember 2024
Jólakaffiboð Mörtu Maríu
Fyrir jólin er ómissandi að líta inn hjá Mörtu Maríu Arnarsdóttur skólameistara Hússtjórnaskólans. Hún var ung að árum þegar amma hennar og nafna kenndi henni að baka randalínu, dekka borð og bjóða ástvinum í fallegt kaffiboð. Marta María gerir allt sem hún kemur nálægt fallegra og deilir hér með lesendum blaðsins nokkrum góðum Húsó-uppskriftum, en einnig uppskriftum frá sér sjálfri.
Lúxusflétta
3 tsk. þurrger
1 dl volgt vatn (37°C)
1 msk. sykur
½ tsk. salt
2 tsk. kardimommudropar
1 dl matarolía
4½ dl hveiti
1 egg
Látið öll þurrefnin í skál og blandið saman. Vætið í með matarolíu, vatni og eggi. Hrærið deigið vel saman með sleif, stráið hveiti yfir og látið hefast. Útbúið fyllinguna á meðan. Blandið öllu saman í skál sem á að fara í fyllinguna og hnoðið í samfellt deig. Notið hendurnar. Hrærið gerdeigið í skálinni og hnoðið síðan á borði. Fletjið út í aflanga köku. Myljið fyllinguna eftir endilangri miðjunni og skerið raufar með hliðunum með 2 cm millibili. Fellið raufarnar yfir fyllinguna eins og fléttu. Penslið með eggjablöndu (egg og mjólk) og stráið möndluflögum yfir. Látið lengjuna lyfta sér í 30 mín eða látið inn í kaldan ofn. Bakið í við 180°C í um það bil 16-20 mín.
Fylling
100 g marsípan
½ dl sykur
40 g smjör
80-100 g suðusúkkulaði, brytjað
Húsó-Lagtertan
675 g smjör
675 g púðursykur
3 stór egg eða 4 lítil
1.125 g hveiti
4½ tsk. negull
4½ tsk. kanill
4½ tsk. matarsódi
6-7 dl mjólk
Hrært deig
Hrærið smjörið ljóst með sykrinum. Setjið eggin út í eitt í einu, hrærið vel á milli. Blandið þurrefnum saman við ásamt mjólkinni, varist að hræra of mikið. Skiptið deiginu í fjóra hluta og smyrjið á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Bakið í miðjum ofni við 180°- 200°C í 10-12 mínútur. Látið botnana kólna fyrir samsetningu. Leggið botnana saman með smjörkremi. Best er að smyrja fyrsta botninn á hvolfi. Hinir geta síðan komið hver á fætur öðrum á „réttunni“. Það er síðan best að setja hlass ofan á kökuna og skera hana í átta bita daginn eftir. Þá er best að vera búinn að mæla bitana út með reglustiku áður en skorið er svo bitarnir verði jafnarma. Skerið kantana af svo kantanir séu beinir og snyrtilegir. Smjörkrem 1 stk. smjör (500 g) 1,5 kg flórsykur 3 egg 1 msk. vanilludropar Gætið þess að hafa smjör og egg við stofuhita. Þeytið smjör og flórsykur saman. Bætið eggjum og vanilludropum saman við og þeytið vel svo að kremið verði létt og ljóst.
Húsó-kleinur
1 kg hveiti
300 g sykur
150 g smjörlíki
6 tsk lyftiduft
2 stór egg
2 tsk matarsódi
6 dl súrmjólk eða AB-mjólk
2 tsk malaðar kardimommur
Blandið öllum þurrefnum saman í hrúgu á borð. Myljið smjörlíkið saman við. Vætið í með sundurslegnum eggjum og helmingnum af súrmjólkinni/AB-mjólkinni. (Myndið fjall úr þurrefnunum og myndið holu fyrir eggin og súrmjólkina). Vætið í með afganginum af súrmjólkinni/AB-mjólkinni og hnoðið. Fletjið út og mótið kleinur. Gott er að nota kleinujárn til að skera út hæfilega stóra tígla, skerið síðan rák í miðja tíglana og snúið öðrum endanum í gegnum rákina. Steikið. Gott er að nota palmin-olíu.
Randalín ömmu
Amma gerði randalín í hringformi og síðan var skorið í hana þvera. Kakan verður betri eftir því sem dagarnir líða. Tilvalið er að bera fram heitt súkkulaði og þeyttan rjóma með randalín. Þá eru jólin komin fyrir mér.
Sveskjumauk
700 g sveskjur
Um það bil 4 dl vatn
250 g sykur
Gott er að byrja strax á sveskjusultunni því það tekur svolítinn tíma að gera hana. Sveskjur settar í pott, gott er að vatnið nái rétt yfir yfirborð sveskjanna. Sjóðið á vægum til miðlungshita og hrærið í af og til þar til sveskjurnar eru komnar í mauk. Gætið þess að þær festist ekki við botninn. Gott er að leyfa þessu að malla í 2-3 klst og hræra reglulega í á meðan. Í lokin er sykrinum bætt saman við, soðið áfram í smá stund. Látið sultuna kólna eilítið áður en henni er smurt á botnana.
Botnar
500 g hveiti
250 g sykur
250 g smjör, við stofuhita
2 egg, við stofuhita
1 tsk. hjartarsalt
2-3 tsk. möndludropar
1 dl vatn eða mjólk, ef þörf er á
Allt sett í hrærivél og hnoðað, bætið við vatni eða mjólk ef þarf til að gera deigið meðfærilegra. Deiginu skipt í 3 jafna hluta, gott er að vigta deigið jafnt. Fletjið deigið út á bökunarpappír. Til að fá hringlaga köku þarf að skera flatt deigið eftir tertumóti áður en það er sett í ofn. Bakið á plötu við 180°C í um það bil 22 mínútur eða þar til botnarnir eru orðnir fallega ljósbrúnir. Setjið sveskjumauk á milli botnanna. Best er að smyrja fyrsta botninn á hvolfi. Hinir geta síðan komið hver á fætur öðrum á „réttunni“. Þegar fyrsti botninn er smurður á hvolfi er auðvelt að sneiða kökuna í nokkra kökubita og bera þannig fram á diski, án þess að það sjáist hvor botninn hafi vísað upp og hvor niður.