16. Desember 2024
Pekanbaka með viskí-vanilluís
Sr. Sigurlín Ívarsdóttir starfaði sem prestur í ensku biskupakirkjunni um árabil. Hún starfar sjálfstætt við sálgæslu og leiðir meðal annars hin vinsælu námskeið A Woman’s Way through The Twelve Steps eftir Dr. Stephanie Covington. Hún hvetur alla sem geta til að njóta samverunnar með fjölskyldu og vinum á jólunum. Allt sem Sigurlín snertir verður að töfrum og ákvað hún að deila með lesendum hvaða köku hún mælir með á jólaborðið. Fyrir valinu varð pekanbaka með ljúffengum viskí-vanilluís sem hún ber vanalega á borð fyrir fjölskylduna sína á aðfangadag.
Pekanbaka
200 g hveiti
1 msk. flórsykur
½ tsk. salt
110 g ósalt smjör
30 g fínmalaðar möndlur
1 tsk. vanilluduft
1 tsk. sítrónusafi
1 egg ískalt vatn
23 cm bökuform
Bökunarbaunir
Setjið hveiti, flórsykur, salt, möndlur, vanillu og kalt smjör í teningum í matvinnsluvél og hrærið þangað til það er orðið sandkennd blanda. Hrærið eggið út í skál og hellið út í blönduna (skiljið smá af egginu eftir til að pensla bökubotninn með) ásamt sítrónusafanum. Hrærið saman uns blandan fer að loða saman. Bætið við 1-3 matskeiðum af köldu vatni þar til blandan verður að hæfilega mjúku deigi.
Takið deigið úr matvinnsluvélinni og hnoðið í kúlu. Takið bökunarpappír og leggið deigið á hann og þrýstið deiginu út með höndunum. Leggið síðan bökunarpappír ofan á deigið og fletjið út með kökukefli þar til deigið passar í 23 cm form. Færið deigið í bökunarpappírnum í formið, lagið til og skerið kantana jafna. Setjið bökunarbaunir ofan á. Bakið við 170 gráður og blástur í 10 mín. Takið út og fjarlægið baunirnar og efri pappírinn. Penslið með afganginum af egginu út við jaðrana, pikkið botninn með gaffli og setjið aftur í ofninn í 10 mín. á 160 gráður blástur. Takið út og geymið.
Fylling
180 g sykur
250 ml síróp
½ tsk. salt
3 egg
60 g ósalt smjör
1 tsk. vanilluduft
150 g pekanhnetur auk 25-30 helminga af hnetum til skrauts.
Stillið ofninn á 170 gráður blástur. Takið til heila hnetuhelminga til að skreyta með. Saxið pekanhnetur í hæfilega stærð fyrir fyllinguna og dreifið þeim jafnt yfir bökubotninn. Setjið sykur, síróp og salt á stóra pönnu á miðlungshita þar til sykurinn er bráðnaður. Takið þá af hitanum og látið kólna aðeins. Hrærið eggin saman með pískara í skál. Hellið blöndunni af pönnunni saman við eggin og hrærið stöðugt í á meðan. Bætið smjöri og vanillu út í og hrærið þar til smjörið er bráðið. Hellið fyllingunni í bökubotninn og skreytið með hnetuhelmingunum. Bakið í 50-60 mínútur. Fylgist með hitanum svo kakan verði ekki of dökk.
Viskí-vanilluís
0,5 l rjómi
60-70 g sykur
4 egg
1 eggjarauða
1 dl frosið Woodford Reserve-viskí
1 tsk. vanilluduft
Setjið formin sem á að nota í frystinn. Stífþeytið rjómann í kaldri skál og geymið í kæli. Þeytið saman í kaldri skál eggjarauðu, egg, vanillu og sykur í 20 mín. Blandið rjómanum í eggjablönduna og þeytið. Setjið frosið viskí út í og þeytið (viskí sett í frysti deginum áður). Blöndunni hellt í form. Gott er að nota möffinsform því þá er ísinn fljótari að frjósa og verður mýkri. Hægt er að sleppa viskíinu og gera vanilluís.