Síðasti dagur til að panta í vefverslun og fá afhent fyrir jól er 18. desember

1. Nóvember 2024

SLOGGI – Frelsi til að vera þú sjálf

Sloggi kynnir til leiks nærfatnað fyrir breiðari aldurshóp. Sloggi leggur áherslu á sjálfsöryggi og vellíðan, ætlað til að veita notendum frelsi til að vera þau sjálf í hvaða aðstæðum sem er og setur þægindi í fyrsta, annað og þriðja sæti. Undanfarin ár hefur Sloggi unnið að því að stækka markhópinn sinn með nýjum og byltingarkenndum línum, hannaðar með því markmiði að þú finnur nánast ekki fyrir nærfatnaðinum.

Nútímakonan vill þetta frelsi – í fallegum gæða nærfatnaði. Vöruval Sloggi hér á landi hefur aldrei verið betra og breiðara fyrir konur og stelpur á fjölbreyttum aldri. Sloggi eru einfaldlega hágæða vörur með þægindi að leiðarljósi. 

Sloggi er alþjóðlegt vörumerki sem hefur sérhæft sig í þægilegum gæða nærfatnaði síðan árið 1979, annað alþjóðlegt vörumerki Triumph Group. Stofnun Sloggi var oft líkt við “bómullarbyltinguna” en fyrstu vörur Sloggi voru hannaðar úr bómul sem gjörbyltu iðnaðinum með nýstárlegri tækni. Enn heldur Sloggi áfram að hanna og framleiða nærfatnað og líkamsfatnað/bodywear með nýsköpun að leiðarljósi og áherslu á þægindi, frelsi og hreyfanleika. Vörurnar þeirra, allt frá hefðbundnum nærbuxum til nútímalegra toppa og brjóstahaldara, eru hannaðar til að mæta þörfum hvers og eins á áreynslulausan og þægilegan hátt. Toppar, bralette og brjóstahaldarar í Sloggi eru án vírspanga en veita þó Sloggiþann stuðning sem leitað er eftir.

Sloggi Zero línan er aðalsmerkið þar sem toppar og nærbuxur eru saumlaus með 360 gráðu teygju, gæðavörur sem halda lit og lögun þvott eftir þvott. Með einstakri sauma- og límlausri tækni fylgja ZERO Feel flíkurnar þér í öllum hreyfingum og virðast „ósýnilegar“ undir fötunum. Þetta er afrakstur sértækrar efnisþróunar þar sem efnið er einstaklega mjúkt, teygjanlegt og andar vel. ZERO Feel topparnir, nærbuxurnar og brjóstahaldararnir eru hannaðir fyrir fjölbreyttar líkamsgerðir, fyrir breiðari aldurshóp og koma í fjölmörgum litum og sniðum. Þannig geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Þú átt skilið Sloggi og frelsi til að vera þú sjálf.