Síðasti dagur til að panta í vefverslun og fá afhent fyrir jól er 18. desember

17. Desember 2024

Snjókrabbaklær er framandi forréttur

Þótt marg­ir kjósi að halda í hefðirn­ar á jól­un­um þá er oft sniðugt að breyta til í for­rétt­um og meðlæti. Hér sýn­ir Snæ­dís Jóns­dótt­ir mat­reiðslumaður hvernig hægt er að elda snjó­krabba­klær á ein­fald­an hátt en þetta skemmti­lega hrá­efni er ljúf­feng­ur for­rétt­ur.

Snjó­krabba­klær
1 poki snjókrabbaklær
Olía
Salt
300 g brauðraspur
½ búnt graslaukur

Hitið pönnu og hellið smá olíu á pönnuna. Setið olíu og salt á krabbakjötið. Steikið vel á rauðari hliðinni og setjið piparrótarmæjónes yfir. Veltið svo upp úr brauðraspi og stráið söxuðum graslauk yfir.

Piparrótarmæjónes
5 msk. japanskt mæjó/gott mæjó
1 pakki (50 g) piparrót
1 stk. rauður chili
25 g dill
1 tsk. sítrónusafi

Skerið chili í tvennt og takið steinana úr, saxið í litla teninga. Saxið dill í fínt og blandið öllu saman við. Gott er að setja í sprautupoka en líka allt í lagi að hafa í skál og dýfa snjókrabbanum þannig í mæjóið.

Smjörsteiktur brauðraspur (pankó)
300 g brauðraspur
50 g smjör
1 tsk. cayenne-pipar
1 tsk. hvítlauksduft

Hitið pönnu á miðlungsháum hita, setjið allt á pönnuna og hrærið í af og til. Þegar smjörið er bráðnað og brauðraspurinn farinn að brúnast þá er hann klár. Setjið raspinn á pappír á bakka og látið kólna.